| Þyngd: | 49 |
179 teikningar og 33 ljósmyndir.
Lærið að prjóna er vönduð og aðgengileg bók. Í myndum og máli sýnir hún öll undirstöðuatriði og grunnaðferðir fyrir þá sem eru að fitja upp í fyrsta sinn. Fyrir þá sem æfingu hafa í listinni ern vilja spreyta sig á flóknari aðferðum er einnig að finna hugmyndir, fróðleik og ýmsar útfærslur í prjóni, eins og á íslensku lopapeysunni og fleiru.
Í bókinni eru ítarlegar leiðbeiningar um ýmiss konar munsturprjón, svo sem kaðlaprjón, klukkuprjón og gataprjón. Kennt er að reikna út stærðir, sauma saman flík og margt fleira. Mikill fjöldi teiknaðra skýringarmynda og ljósmynda er í bókinni.
Lærið að prjóna er raunar bók fyrir allt áhugafók um prjónaskap, og hjá þeim sem lagt hafa prjónanan frá sér glæðist áhuginn á ný við lestur hennar.
Höfundur bókarinnar, Erla Eggertsdóttir stofnaði og gaf út í mörg ár prjónablaðið ,,Lopi og band''.