Við bjóðum ykkur velkomin í Skaga-Mollið á Akranesi.
Undir sama þaki vinnum við í sátt og samlyndi, þ.e. Garnbúðin ehf, Fatastíll ehf, Stella Bára Design, List og handverksfélag Akraness og nágrennis -GALLERÍ URMULL, Flóki hársnyrtistofa og vonandi von bráðar rekstraraðili af kaffiveitingum og upplýsingaveitu um nágrenni okkar.
Við erum glaðar konur hér á Skaganum sem höfum tekið höndum saman og gert Mollið okkar að veruleika, og má nú segja að þetta sé eina Mollið á Íslandi ;) svo einstakar erum við. Nú að sjálfsögðu hafa bæst karlmenn í félag okkar og eru þeir verulega velkomnir ;)
Þú einfaldlega tekur upp tólið og pantar heimsókn til okkar ef opnunartíminn hentar ekki.
Opnunartími Skaga-Mollsins er svo hljóðandi:
Mánudaga 10 - 18
Þriðjudaga 10 - 18
Miðvikudaga 10 - 18
Fimmtudaga 10 - 21
Föstudaga 10 - 18
Laugardaga 10 - 16