Kæru prjónakonur og velunnarar.
Við þökkum ykkur hlýjar móttökur í kvöld, leitt hvernig var staðið að hlutunum og urðum við því frá að hverfa.
Við viljum minna ykkur á að ef þið komið í hópum í heimsókn til okkar þá er það einlægur vilji okkar að gera gott fyrir ykkur, ef einhverjar spurningar vakna þá endilega takið upp símann og hringið í okkur.
Ferðin var þó ekki alveg til ónýtis ;) Anna og Guðrún skelltu sér á Nings og fengu sér núðlur í tómann magann, þar sem undirbúningur dagsins hafði tekið frá okkur matar og kaffitíma.En við erum sáttar, gaman að sjá hvað allir voru með eitthvað fallegt á prjónunum og greinilega góður félagsskapur sem þið vonandi viðhaldið sem allra lengst.
kærar kveðjur frá okkur á Skaganum !
Anna og Guðrún